Línubátur.

Það er varla hægt að kalla Ólaf HF 200 handfærabát, heldur er um að ræða yfirbyggðan línubát af fullkomnustu gerð. Að því er ég best er ekki hægt að koma fyrir rúllum um borð.

http://www.skip.is/skipaskra/skip/2640/


mbl.is Staðinn að ólöglegum veiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjafasókn

Gott mál. Það er surning hvort ekki ætti að stofna sjóð svo að "litli hluthafinn" geti leitað réttar síns í tilfellum sem þessum. þar að segja þar sem það lítur út fyrir að hag þeirra hafi ekki verið gætt.
mbl.is Vill 31.461 krónu í bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dásemdir ESB

Segir þetta ekki allt sem segja þarf um dásemdir Evrópusambandsins! Þegar ein mest ráðandi þjóðin innan ESB er að verða þeirrar skoðunar að best sé að fara út úr ESB þá vilja Samfylkingarmenn inn sem aldrei fyrr.
mbl.is Bretar vilja snúa baki við ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítill sætur bangsi.

 

Það er vægast sagt broslegt ef ekki grátlegt að heyra í fólki sem finnst sem það hefði ekki verið neitt mál þó að fyrri björninn hefði sloppið inní þokuna nokkrum kílómetrum frá leikskólanum á Sauðárkróki. Og eða menn hefðu týnt þeim seinni í haf og á land kannski við byggð einhverstaðar annarsstaðar.

Þar sem fólk virðist ekki skilja að hér eru á ferðinni ein hættulegustu rándýr á norðlægum slóðum. Og með það fyrir augum brást lögregla hárrétt við með að aflífa dýrin.

Þessar björgunartilraunir minna óneitanlega á blessaðan Keikó, sem jú tókst í raun aldrei að bjarga.

Hérna fylgir með slóð á myndir af árás hvítabjörns. (ekki fyrir viðkvæma)

http://www.hondahookup.com/forums/showthread.php?t=117389


mbl.is Hálendisbjörn er hugsanlegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villandi frétt!

Það eru ekki allir veiðimenn sem skila inn upplýsingum í rafræna veiðidagbók UST, enda engin skilda að gera það. Hinsvegar eiga allir að skila inn veiðiskýrslu til að fá veiðikort endurnýjað enn það er ekki fyrr enn í enda tímabilsins.

Þess vegna að slá því fram að 386 rjúpur hafi verið veiddar á fyrstu 4 dögunum er ekki rétt og í besta falli villandi. Því þarna er eingöngu verið að tala um það litla brot veiðimanna sem fylla inn í rafræna dagbók á vef UST.

Sem ég reyndar geri nú í ár í fyrsta skipti.

Að öðru leiti er erfitt að bera veiðitímabilið nú, saman við t.d. veiðitímabilið í fyrra tölulega, þar sem veiðinn hefst ekki á sama tíma, og var því veður um mest allt land mjög frábrugðið t.d. fyrstu dögunum í fyrra.


mbl.is 386 rjúpur veiddar á fyrstu 4 veiðidögunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband